Fylgjast áfram með kurlinu

Frá Álfsnesi í morgun þegar eldurinn logaði enn glatt í …
Frá Álfsnesi í morgun þegar eldurinn logaði enn glatt í dekkjakurlinu. mbl.is/Hari

Tveir slökkviliðsmenn sinna nú eftirliti með dekkjakurli í urðunarstöðinni á Álfsnesi sem eldur kom upp í um helgina og síðan aftur í morgun. Talið er að eldurinn sé endanlega slokknaður en hugsanlegt er þó að enn leynist glæður í kurlinu.

Til stendur að vakta staðinn þar til klukkan 23:00 í kvöld samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Slökkviliðsmennirnir tveir sem sinna eftirlitinu eru með nauðsynlegan búnað með sér til að bregðast við gjósi eldur upp á nýjan leik. Ef á þarf að halda verður síðan frekari mannskapur kallaður á vettvang.

mbl.is/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert