Sprengdi flugeld í garði íbúa

Lögregla ítrekar að stranglega er bannað að skjóta upp flugeldum …
Lögregla ítrekar að stranglega er bannað að skjóta upp flugeldum á þessum tíma árs. mbl.is/​Hari

Sumir virðast seint ætla að átta sig á að flugeldasprengingar eru stranglega bannaðar frá og með 7. janúar að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum. Í gærkvöldi var flugeldum hent inn í garð hjá íbúa í umdæmi lögreglunnar og var það raunar í annað skiptið í gær sem það gerðist.

Þá var lögreglu einnig tilkynnt um að verið væri að henda flugeldum út úr bifreið sem var á ferð í umdæminu. Lögreglumenn höfðu uppi á viðkomandi sem viðurkenndi ekki verknaðinn en kvaðst þó ætla að hætta þessu. Hann var ekki orðinn 18 ára og var því forráðamönnum hans tilkynnt um atvikið.

Lögregla ítrekar að stranglega er bannað að skjóta upp flugeldum á þessum tíma árs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert