Tvö eldsútköll í morgunsárið

mbl.is/Eggert

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur í tvígang verið kallað út nú í morgunsárið vegna elds. Í fyrra skiptið rétt fyrir klukkan sex en kviknað hafði í kertaskreytingu á heimili í Bústaðahverfinu.

Að sögn varðstjóra voru íbúar búnir að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á vettvang en húsið var reykræst. Engum heimilismanna varð meint af. 

Annað teymi slökkviliðsmanna er nú að störfum á urðunarstaðnum í Álfsnesi en þar kviknaði í rusli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert