Ákvæði laga kveða skýrt á um heimild og fyrirkomulag álagningar fasteignaskatta og hvernig reikna skuli stofn álagningar fasteignagjalda, samkvæmt umsögn fjármálastjóra og borgarlögmanns Reykjavíkurborgar um erindi Félags atvinnurekenda (FA) til borgarinnar.
Þetta kemur fram í bókun fulltrúa borgarstjórnarmeirihlutans í borgarráði frá því í morgun og einnig er tekið fram að hlutfall fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði muni lækka úr lögbundnu hámarki (1,65%) niður í 1,63% árið 2021 og svo niður í 1,60% árið 2022. Þá er bent á að fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði hafi verið lækkuð á síðasta kjörtímabili.
Erindi FA var rætt á borgarráðsfundi í morgun, en félagið sendi Reykjavíkurborg og fleiri sveitarfélögum bréf þess efnis að í greinargerð með lögum um tekjustofna sveitarfélaga komi fram að álag á fasteignaskatta eigi að vera endurgjald fyrir veitta þjónustu, en ekki eiginlegir eignaskattar.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í borgarráði bókuðu að það væri „áhugavert, og kannski ámælisvert“ að borgin hefði ekki veitt „efnislegan rökstuðning sem sýndi fram á að beiting álagsins væri nauðsynleg vegna kostnaðar við að veita fyrirtækjum borgarinnar þjónustu.“
Vegna þessarar bókunar Sjálfstæðisflokksins lögðu fulltrúar meirihlutaflokkanna fram gagnbókun, þar sem sagði að í Reykjavík væri eitt lægsta álagningarhlutfall fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði í landinu.
„Verðlagseftirlit ASÍ komst þannig að því [að] hverfi í Reykjavík eru meðal þeirra allra hagstæðustu á landinu þegar horft hefur verið til álagningar á fasteignaeigendur, þegar tekið hefur verið mið af álagningarhlutfalli annars vegar og fasteignaverði hins vegar,“ segir í bókuninni, auk þess sem aftur var minnt á að lækkun fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði komi til framkvæmda á síðari hluta kjörtímabilsins, í samræmi við samstarfsyfirlýsingu flokkanna fjögurra.
„Það er ábyrg afstaða sem tekur mið af fjárhagsstöðu borgarinnar, samkeppnishæfni atvinnulífsins og þeirra brýnu verkefna sem borgin er að fást við og fjármagna,“ segir í bókun borgarráðsfulltrúa borgarstjórnarmeirihlutans.