Fá sömu móttökur við komuna til landsins

Ásmundur Einar Daðason.
Ásmundur Einar Daðason. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögur Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, þess efnis að ekki skipti lengur máli hvort flóttafólk komi hingað til lands sem umsækjendur um alþjóðlega vernd eða í boði stjórnvalda. Móttökur yfirvalda verða þær sömu.

Ásmundur kynnti málið á fundi í Þróunarsetri Vestfjarða en greint er frá því á vef Stjórnarráðsins. Þar með munu þeir flóttamenn sem komast hingað á eigin vegum fá aðstoð við að koma undir sig fótunum, líkt og kvótaflóttamenn.

Tillögur að samræmdri móttöku fyrir flóttafólk eru byggðar á skýrslu nefndar sem ráðherra skipaði til að kortleggja stöðu þessara mála og gera tillögur að samræmdu móttökukerfi. Nefndin skilaði ráðherra skýrslu sinni nýverið en í henni er lögð áhersla á að flóttafólk njóti þjónustu við komuna til landsins í samræmi við þær áherslur sem koma fram í framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda og í samstarfssáttmála ríkisstjórnarinnar.

Meðal þess sem lagt er til er að öllu flóttafólki sem fær alþjóðlega vernd hér á landi standi til boða að fara til móttökusveitarfélags en það sé jafnframt frjálst val hvers einstaklings hvort hann þiggur slíkt boð.

Félagsmálaráðuneytið mun strax hefja undirbúning að innleiðingu samræmdrar móttöku flóttafólks. Meðal annars verður auglýst eftir sveitarfélögum sem vilja taka að sér móttöku flóttafólks og gerðir við þau samningar þar að lútandi. Hlutverk sveitarfélaganna verður að tryggja samfellda og sveigjanlega þjónustu með einstaklingsmiðaðri áætlun og tryggja meðal annars að flóttafólki standi til boða húsnæði til leigu.

Fjölmenningarsetrið verður eflt og einnig verður sett á fót staða starfsmanns á þess vegum á höfuðborgarsvæðinu. Hlutverk Fjölmenningarsetursins verður meðal annars að tengja saman flóttafólk og móttökusveitarfélög og veita sveitarfélögum faglegar leiðbeiningar og ráðgjöf. Vinnumálstofnun mun fá aukið hlutverk þar sem hún mun m.a. annast íslenskukennslu og samfélagsfræðslu auk aðstoðar við atvinnuleit og aðra virkni, svo sem nám, atvinnu með stuðningi og starfsþjálfun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert