Lögreglan lýsir eftir Toyota Corolla

Sams konar bíll og var stolið í gær.
Sams konar bíll og var stolið í gær. Ljósmynd/Aðsend

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir rauðri Toyota Corolla með skráningarnúmerið NN-568, árgerð 2003, sem var stolið á Rauðarárstíg í Reykjavík síðdegis í gær.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112, að því er segir í tilkynningu. 

Meðfylgjandi er mynd af sams konar bíl og var stolið í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert