Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar vegfarendur við hálku sem er víðast hvar á höfuðborgarsvæðinu. Hún getur verið sérstaklega varasöm víða á göngustígum og bifreiðastæðum.
Spáin fyrir höfuðborgarsvæðið í dag:
Austan og síðar suðaustan 5-10 og skúrir eða él í dag. Hiti 1 til 4 stig. Suðaustan 10-18 og rigning eða slydda í fyrramálið, en snýst í suðvestan 8-15, kólnar með slyddu og síðan snjókomu um hádegi. Éljagangur síðdegis og hiti um og undir frostmarki.
Vetrarfærð er í öllum landshlutum en þó síst á Suðvesturlandi. Hvergi er spáð hvössum vindi. Þar sem hiti er um og yfir frostmarki má búast við slæmri hálku meðan snjó og hálku er að taka upp, samkvæmt vef Vegagerðarinnar.
Suðvesturland: Hálkublettir eru m.a. á Hellisheiði en snjóþekja á Mosfellsheiði. Annars eru aðalleiðir greiðfærar en sums staðar er krap eða hálka á fáfarnari vegum, raunar flughált á Krýsuvíkurvegi og á kafla vestan Grindavíkur.
Vesturland: Víða éljagangur, og snjóþekja eða hálka á flestum vegum.
Vestfirðir: Mikið autt við Breiðafjörð en meiri hálka á öðrum leiðum. Ófært er norður í Árneshrepp sem og um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar.
Norðurland: Snjóþekja og hálka um allt svæðið og sums staðar éljagangur.
Norðausturland: Snjóþekja og hálka víðast hvar og éljagangur.
Austurland: Snjóþekja eða hálka og víða ofankoma. Ófært er um Breiðdalsheiði og Öxi.
Suðausturland: Hálka meira og minna með suðausturströndinni. Hiti er á köflum yfir frostmarki og þar má búast við leiðinlegum aðstæðum.
Suðurland: Þar er víðast hvar nokkur hálka, krapi eða snjóþekja. Sums staðar er raunar flughált á útvegum.