Sólveig bæjarlistamaður Seltjarnarness

Sólveig Pálsdóttir, bæjarlistamaður Seltjarnarness.
Sólveig Pálsdóttir, bæjarlistamaður Seltjarnarness. Ljósmynd/Aðsend

Sólveig Pálsdóttir var útnefnd bæjarlistamaður Seltjarnaness 2019 við hátíðlega athöfn á bókasafni Seltjarnarness í gær. Þetta er í 23. sinn sem bæjarlistamaður Seltjarnarness er útnefndur en í fyrsta sinn sem rithöfundur hlýtur þennan heiður.

Menningarnefnd Seltjarnarness sér um val bæjarlistamanns ár hvert og veitti Guðrún Jónsdóttir, formaður menningarnefndar, Sólveigu viðurkenningarskjal ásamt starfsstyrk að upphæð 1.000.000 kr. sem fylgir nafnbótinni.

Sólveig, sem hefur búið á Seltjarnarnesi til fjölda ára, er menntuð leikkona frá Leiklistarskóla Íslands. Hún starfaði sem slík auk þess að vera dagskrárgerðarmaður hjá RÚV 1982-1990. Sólveig leikur enn öðru hverju og lék m.a. í sjónvarpsþáttaröðunum Dagvaktinni, Venjulegu fólki sem og Rétti 1 og 2.  

Á árinu 1996 lauk Sólveig almennri bókmenntafræði og kennsluréttindanámi frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem íslensku-, tjáningar- og leiklistarkennari auk þess sem hún hefur haldið fjölda námskeiða fyrir einstaklinga og stjórnendur sem vilja bæta sig í samskiptum, sjálfsstyrkingu, tjáningu og framkomu.

Frá árinu 2013 hefur Sólveig starfað sem rithöfundur. Þegar hafa komið út eftir hana fjórar glæpasögur sem allar hafa hlotið góða dóma og vinnur Sólveig nú að sinni fimmtu bók sem kemur út í haust. Fyrsta skáldsagan hennar, Leikarinn, kom út árið 2012, Hinir réttlátu árið 2013, Flekklaus árið 2015 og Refurinn árið 2017. Bækur hennar hafa verið gefnar út erlendis og bíómynd eftir Leikaranum hefur verið í undirbúningi. Að auki vinnur breskt kvikmyndafyrirtæki að fjármögnun sjónvarpsþáttaraðar byggða á bókinni Refurinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert