170 viðburðir á Íslandi á formannsárinu

Dagfinn Høybråten, framkvæmdastjóri norrænu ráðherranefndarinnar, Sabine Westerholm, forstjóri Norræna hússins, …
Dagfinn Høybråten, framkvæmdastjóri norrænu ráðherranefndarinnar, Sabine Westerholm, forstjóri Norræna hússins, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda. Ljósmynd/Aðsend

170 norrænir og alþjóðlegir fundir og viðburðir fara fram á Íslandi næsta árið í tengslum við formennsku Íslands í norrænu ráðherranefndinni. Þetta var meðal þess sem fram kom á kynningu í Norræna húsinu nú síðdegis, en Ísland tók formlega við formennskunni um síðustu áramót.

Er yfirskrift formennsku Íslands „Gagnvegir góðir“ og er þar vísað til vináttu og samstarfs Norðurlandanna í fortíð og framtíð að því er fram kemur í frétt á vef Stjórnarráðsins

„Norðurlöndin eru á margan hátt að þjappa sér betur saman, nú þegar ákveðin óvissa ríkir á alþjóðavettvangi,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, í ávarpi sínu. Kvað hann norrænt samstarf vera afar mikilvægt fyrir Ísland. Norðurlöndin veiti styrka pólitíska fótfestu, séu samanlagt stærsta viðskiptaland Íslands og mikilvægur vettvangur fyrir menningu og listir, menntun og rannsóknir. 

Áherslur Íslands á formennskuárinu eru þrjár: Ungt fólk, sjálfbær ferðamennska og málefni hafsins. Efnt verður til samtals níu samnorrænna formennskuverkefna á þessum sviðum og í tengslum við formennskuna fara fram hátt í 170 norrænir og alþjóðlegir fundir og viðburðir á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert