Heimavellir seldu fyrir 6,2 milljarða

Heimavellir ætla að selja 122 íbúðir í níu blokkum á …
Heimavellir ætla að selja 122 íbúðir í níu blokkum á Ásbrú. mbl.is/Svanhildur Eiríksdóttir

Heimavellir, stærsta leigufélag landsins, hefur verið að endurskipuleggja eignasafnið sitt en á síðasta ári seldi félagið alls 210 íbúðir fyrir 6,2 milljarða króna. Þar af var eignasala á fjórða ársfjórðungi 2,9 milljarðar króna.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu Heimavalla til Kauphallarinnar í gær. Þar segir m.a. að eitt af forgangsverkefnum félagsins sé endurskipulagning á eignasafninu. Áhersla hafi verið á að selja stakar eignir og einingar sem falla ekki að stefnu félagsins, eins og markaðsaðilum hafi verið kynnt í nóvember sl.

Heildareignasala Heimavalla á árunum 2018 til 2020 er ráðgerð um 17 milljarðar króna en á móti hyggst félagið bæta við sig nýjum hagkvæmum eignum. Einn liður þessa verkefnis er endurskipulagning eignasafnsins á Ásbrú og hefur félagið ákveðið að selja níu fjölbýlishús á Ásbrú sem tilheyra svokölluðu 900 hverfi. Um er að ræða 122 íbúðir sem eru að meðaltali 155 fm að stærð og 32 stúdíóíbúðir sem eru ríflega 40 fm hver. Eftir sölu þessa eignasafns mun félagið eiga og reka 583 íbúðir á Ásbrú og er meðalstærð þeirra 98 fm.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert