Opið verður í Bláfjöllum kl. 14-21 í dag. Á svæðinu er fimm stiga frost og vindhraðinn á bilinu 2-3 metrar á sekúndu.
Fram kemur á Facebook-síðu skíðasvæðisins, að það hafi komið „jólasnjókoma“ annað slagið í nótt.
Tekið er fram, að utan troðinna brauta geti verið stutt niður á grjót.