Telur tillögurnar vel unnar

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir mikilvægt að húsnæðisþörf ólíkra …
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir mikilvægt að húsnæðisþörf ólíkra þjóðfélagshópa verði mætt. Ljósmynd/BSRB

Vel er tekið í tillögur átakshóps stjórnvalda í húsnæðismálum í fréttatilkynningu frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja (BSRB). Tillögurnar, sem kynntar voru í gær, eru sagðar vel unnar og gott innlegg í umræðuna. Enn fremur er þeirri samstöðu sem náðst hafi um aðgerðir fagnað. Stjórnvöld þurfi að hafa hraðar hendur í kjölfarið og fjármagna tillögurnar og tryggja að þær nái fram að ganga.

„Mikilvægt er að fylgt verði eftir tillögum um áframhaldandi uppbyggingu almennra íbúða og að ríki og sveitarfélög auki fjárveitingar í stofnframlög á næstu árum, til dæmis til Bjargs íbúðafélags, sem stofnað var af ASÍ og BSRB. Þá er einnig þörf á því að endurskoða sem fyrst tekjumörk leigjenda í almenna íbúðakerfinu og að lækka fjármagnskostnað þeirra félaga sem standa að uppbyggingu þar til að tryggja framgang kerfisins. Þá er jákvætt að átakshópurinn tekur undir áherslur BSRB um stuðning við önnur íbúðafélög sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni,“ segir enn fremur.

Lögð er áhersla á mikilvægi þess að byggja í samræmi við þörfina hverju sinni. Til þess þurfi að efla upplýsingaöflun svo hægt verði að sjá hversu margar og hvernig íbúðir séu í byggingu hverju sinni. Út frá því megi áætla betur þörfina á næstu árum og koma í veg fyrir einsleita uppbyggingu dýrari íbúða. Miklu skipti að það húsnæði sem byggt er henti tekjulægri hópum á vinnumarkaði.

Haft er eftir Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formanni BSRB, að von bandalagsins sé að húsnæðisþörf ólíkra hópa verði mætt. „Það á að vera forgangsverkefni stjórnvalda að húsnæðiskostnaður lækki og að tryggt verði nægilegt framboð á húsnæði svo að fólk hafi raunverulegt val um hvort það eigi eða leigi húsnæði.“ Of stór hluti tekna margra fari í húsnæðiskostnað og er lögð áhersla á að unnið sé hratt og vel að lækkun hans á sama tíma og framboð sé aukið svo allir geti átt kost á að búa í viðunandi húsnæði á viðráðanlegu verði.“

Frá Reykjavík.
Frá Reykjavík. mbl.is/Hjörtur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert