Riðuveiki greinist í Skagafirði

Riðan greindist í sýnum úr tveimur kindum frá bænum Álftagerði …
Riðan greindist í sýnum úr tveimur kindum frá bænum Álftagerði þar sem nú eru um 370 fjár. mbl.is/Árni Sæberg

Riðuveiki hefur verið staðfest á bænum Álftagerði í nágrenni Varmahlíðar í Skagafirði. Síðast greindist riða á þessu svæði í september síðastliðnum á bænum Vallanesi. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða. Þetta er fyrsta tilfelli riðuveiki sem greinist á árinu en á síðasta ári greindist eitt tilfelli.

Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að riðan greindist í sýnum úr tveimur kindum frá bænum þar sem nú eru um 370 fjár. Bóndinn hafði samband við héraðsdýralækni vegna kindanna sem sýndu einkenni riðuveiki. Kindurnar voru aflífaðar og sýni tekin og send á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum þar sem riðuveiki var staðfest í báðum sýnum.

Búið er í Húna- og Skagahólfi og í því hólfi hefur riðuveiki komið upp á átján búum á undanförnum 20 árum en á þessu búi greindist veikin síðast árið 2008. „Riðuveiki hefur komið upp á mörgum bæjum í Varmahlíð í gegnum tíðina og má segja að um þekkt riðusvæði sé að ræða,“ segir í tilkynningu Matvælastofnunar.

Þar segir einnig að riðan sé á undanhaldi en nýjasta dæmið sýni að ekki megi sofna á verðinum. Fram til ársins 2010 greindist riða á nokkrum bæjum á landinu á hverju ári en engin tilfelli hefðbundinnar riðu greindust á árunum 2011-2014.

Héraðsdýralæknir vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga og úttekt á búinu til að meta umfang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreinsun. Því næst fer málið í hefðbundið ferli hvað varðar gerð samnings um niðurskurð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert