Hækkandi fasteignaskattar

Fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði hækkuðu mest í Reykjavík milli ára 2018 …
Fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði hækkuðu mest í Reykjavík milli ára 2018 og 2019, eða um tæp 17%. mbl.is/Sigurður Bogi

Samtök iðnaðarins (SI) áætla að álagðir fasteignaskattar á fyrirtæki hafi tvöfaldast, úr 12,6 milljörðum árið 2011 í 26 milljarða í ár. Það sé 60% hækkun skatta umfram verðbólgu á tímabilinu. Milli ára 2018 og 2019 sé hækkunin 13,5%.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir þessar tölur sýna að sveitarfélögin, sem eru öll í eða við hámarksskatthlutfallið, seilist dýpra og dýpra í vasa atvinnulífsins.

„Þetta er gríðarleg aukning á stuttum tíma. Skattar á fyrirtæki eru háir hér í samanburði við þau lönd sem við viljum bera okkur saman við. Þessir fasteignaskattar eru birtingarmynd þess og ekki hægt að bjóða fyrirtækjum upp á þetta til viðbótar við sveiflur, óstöðugleika og miklar innlendar kostnaðarhækkanir. Þá eru laun há hér á landi í alþjóðlegum samanburði. Nú þegar hægir verulega á hagvextinum dregur úr tekjum margra fyrirtækja en á sama tíma eru sveitarfélögin að taka sífellt meira til sín eins og við sjáum í væntri álagningu fyrir 2019. Þá má heldur ekki gleyma því að sveitarfélögin eru að fá þetta til viðbótar við útsvarið frá starfsmönnum fyrirtækja,“ segir Sigurður í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert