27,5 stiga frost á Möðrudal

Ásta Price og Ísak Sigurðsson létu frostið við Mývatn ekki …
Ásta Price og Ísak Sigurðsson létu frostið við Mývatn ekki á sig fá. mbl.is/Birkir Fanndal

Afar kalt var á Norðausturlandi í gær. Þannig mældist 27,5 stiga frost á Möðrudal undir kvöld, 24,9 gráðu frost á Brú á Jökuldal og við Mývatn mældist 23,7 gráðu frost í bjartviðri og logni.

Að sögn Birkis Fanndals, fréttaritara Morgunblaðsins í Mývatnssveit hélt fólk sig þar mest inni við í gær.

Algengt er að mikið frost sé við Mývatn, að sögn Þorsteins V. Jónssonar, veðurfræðings á Veðurstofunni. Þannig háttar til að veðurmælirinn er á Neslöndum, sem þýðir að hann er umkringdur vatni. Því komi enginn hiti frá vatninu svo kuldapollur myndist. Hins vegar sé ekki eins kalt þegar fjær dragi.

Draga átti úr frostinu í nótt og í dag, en á svæðinu getur orðið mjög kalt, sérstaklega í stillum og björtu veðri, að sögn Þorsteins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert