Vilja aukna greiðsluþátttöku í sálfræðiþjónustu

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir flytur frumvarpið á morgun.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir flytur frumvarpið á morgun. mbl.is/Eggert

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, mun á þingfundi á morgun leggja fram frumvarp um að sjálfræðisþjónusta verði færð undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands, en sálfræðiþjónusta er nú undanskilin almennri greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga.

Í greinargerð frumvarpsins segir að markmiðið með frumvarpinu sé að þjónustan verði veitt á sömu forsendum og önnur heilbrigðisþjónusta, á borð við heilsugæslu, þjónustu sérgreinalækna og sjúkraþjálfun. Því sé ætlað að tryggja aðgengi einstaklinga að sálfræðiþjónustu. Þar er enn fremur greint frá mikilvægi þess að tryggja að þeir sem séu með virk einkenni fái lausn á vanda sínum sem fyrst til að koma í veg fyrir vítahring lyfja, þunglyndis og óvirkni.

Í fréttatilkynningu segir að frumvarpið hafi þegar hlotið góð viðbrögð á þinginu og að minnsta kosti 21 þingmaður úr flestum þingflokkum muni flytja frumvarpið með Þorgerði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert