Sekur um stórfelldar ærumeiðingar gegn fyrrverandi

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í málinu.
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í málinu. mbl.is/Þorsteinn Ásgrímsson

Karlmaður hefur verið dæmdur í héraðsdómi í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða fyrrverandi sambýliskonu sinni 300 þúsund krónur ásamt 1,9 milljónum í málskostnað fyrir stórfelldar ærumeiðingar. Hann var hins vegar sýknaður af ákæru um brot gegn blygðunarsemi. 

Maðurinn tók mynd af fyrrverandi sambýliskonu sinni þar sem hún var sofandi ásamt öðrum karlmanni og dreifði myndinni til þriggja annarra einstaklinga á Facebook. Hafði maðurinn búið með konunni í umræddri íbúð, en deilt var um hvort sambúð þeirra hafi verið lokið á þessum tímapunkti.

Gekkst maðurinn við að hafa tekið myndirnar og sent þær á þrjá vini sína. Sagði hann fyrir dómi að ætlun sín hafi ekki verið að móðga konuna. Þá hafi háttsemi hans ekki stjórnast af lostugu athæfi, heldur hafi honum verið brugðið og viljað eiga myndina ef konan myndi þræta fyrir að annar maður hafi gist hjá henni.

Samkvæmt lögum um blygðunarsemisbrot skal hver sá sem með lostugu athæfi særir blygðunarsemi manna eða er til opinbers hneykslis sæta fangelsi allt að fjórum árum, en fangelsi allt að sex mánuðum eða sektum ef brot er smávægilegt. Til þess að háttsemi teljist refsinæm samkvæmt ákvæðinu þarf hún að vera lostug og vera til þess fallin að særa blygðunarsemi einhvers manns eða vera til opinbers hneykslis.

Samkvæmt dóminum verður því ekki slegið föstu að verknaður mannsins að taka myndina og senda hana á þrjá vini sína teljist lostugt athæfi. Er hann því sýknaður af þeim hluta ákærunnar.

Hins vegar er hann fundinn sekur um stórfelldar ærumeiðingar gegn konunni. Segir í dóminum að með hinni heimildarlausu myndatöku af brotaþola, hálfnakinni, og nöktum karlmanni, þar sem þau lágu sofandi saman í rúmi og sendingu myndarinnar í kjölfarið hafi maðurinn móðgað og smánað konuna. Hlaut manninum að vera þetta ljóst og telur dómurinn skýringar hans á verknaðinum haldlitlar.

Dómur í málinu féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun ársins, en var fyrst birtur á vef dómstólsins í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert