Veggjöldin eiga nokkuð í land

Alþingi mun þurfa að samþykkja í vor sérstaka heimild til …
Alþingi mun þurfa að samþykkja í vor sérstaka heimild til innheimtu veggjalda ef af því á að verða. mbl.is/Sigurður Bogi

Talsvert er eftir af því ferli sem þarf til ef innheimta skal veggjöld til þess að flýta uppbyggingu samgöngumannvirkja. Fyrst mun þingið afgreiða samgönguáætlun og mun ráðherra kynna frumvarp á vorþingi sem veitir heimild til þess að fara umrædda leið, segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is.

Verði frumvarp ráðherrans samþykkt í vor mun síðan þurfa að endurskoða samgönguáætlun með tilliti til þeirra heimilda til þess að flýta framkvæmdum með innheimtu veggjalda. Sú vinna mun geta farið fram í haust að sögn Jóns.

„Með veggjöldunum mun losna um fjármuni sem gerir okkur kleift að flýta verkefnum og munum við þá vinna að því að ýta verkefnum sem eru aftar í samgönguáætlun framar,“ segir þingmaðurinn.

Enn er eftir að útfæra hvernig sé hægt að útfæra innheimtuna meðal annars með tillit til nýrrar ríkisfjármálaáætlun sem verður afgreidd í vor. Þá munu útfærsluatriðin einnig ráða för um hvort þurfi heimildir í fjárlögum til þess að hefja innheimtu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert