Mikið álag á bráðamóttöku Landspítala

Mikið álag er nú á Landspítala, sérstaklega á bráðamóttöku.
Mikið álag er nú á Landspítala, sérstaklega á bráðamóttöku. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mikið álag er nú á Landspítala, einkum bráðamóttöku, vegna mikils fjölda sjúklinga sem leitað hefur til spítalans síðustu daga. Á bráðamóttöku Landspítala er sjúklingum forgangsraðað eftir bráðleika.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef spítalans. Þar segir að við þær aðstæður sem nú eru á spítalanum megi gera ráð fyrir að þeir sem séu í ekki bráðri þörf þurfi að bíða þjónustu eða verði vísað á heilsugæslustöðvar eða Læknavaktina í Austurveri.

„Landspítali hvetur fólk með minni háttar veikindi eða smávægileg líkamstjón til að leita til sinnar heilsugæslu eða Læknavaktarinnar í Austurveri, ef kostur er. Þeir aðilar munu sinna fólki og vísa til Landspítala, ef þörf krefur,“ segir í tilkynningu á vef spítalans.

Með fylgja neðangreindar upplýsingar um heilsugæslu og Læknavaktina:

Það eru fimmtán heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu og þær eru að jafnaði opnar kl. 8:00-16:00 og allar með síðdegisvakt að minnsta kosti kl. 16:00-17:00 mánudaga til fimmtudaga. Sumar stöðvar eru með vakt til kl. 18:00 og á nokkrum stöðvum er líka opið á föstudögum. Nánari upplýsingar um þjónustutíma er að finna á forsíðu hverrar heilsugæslustöðvar

Læknavaktin í Austurveri við Háaleitisbraut er með móttöku alla virka daga kl. 17:00-23:30 og um helgar kl. 09:00-23:30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert