Biðst afsökunar á ummælum um gyðinga

Páll Óskar Hjálmtýsson hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um …
Páll Óskar Hjálmtýsson hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um gyðinga, sem hann lét falla í útvarpsþætti í gær. mbl.is/Kristinn Magnússon

Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður hefur sent frá sér yfirlýsingu, þar sem hann biðst afsökunar á orðum sem hann lét falla um gyðinga í útvarpsþættinum Lestinni á Rás 1 í gær, þar sem hann ræddi afstöðu sína til Eurovision-söngvakeppninnar, sem fram fer í Ísrael.

Páll Óskar hefur verið gagnrýndur harðlega vegna ummæla í þættinum og sakaður um gyðingahatur.

„Ég viðurkenni fúslega að ég gekk allt of langt í orðum mínum, ég blandaði ríkisstjórn Ísraels, Ísraelsher og gyðingum saman í einn graut. Ég fór með áfellisdóma og alhæfingar um gyðinga,“ segir Páll Óskar í yfirlýsingu sinni, sem hann birtir á facebooksíðu sinni í kvöld.

Hvað sagði Páll Óskar?

Páll Óskar sagði í gær, að ástæðan fyrir því að Evrópuþjóðir væru ekki að mótmæla því að Ísrael héldi Eurovision væri sú að gyðingar væru „búnir að sauma sig inn í Evrópu á mjög lúmskan hátt á mjög löngum tíma“.

Orðrétt: „Ástæðan fyrir því að restin af Evrópu þegir þunnu hljóði er sú að gyðingar eru búnir að sauma sig inn í Evrópu á mjög lúmskan hátt á mjög löngum tíma. Það er alls ekki hipp og kúl að vera „pro-Palestína“ í Bretlandi.“

Þá fjallaði Páll Óskar um ofbeldi sem Palestínumenn verða fyrir af höndum Ísraelsstjórnar, og sagði hann gyðinga ekki hafa lært neitt af helförinni.

Orðrétt: „Tragedían er sú að gyðingar lærðu ekki neitt af helförinni. Í staðinn umbreyttust þeir í nákvæma afsteypu af sínum ógeðslegasta óvini.“

Tekur orð sín um gyðinga til baka

„Ég tek fulla ábyrgð á þessum ummælum, tek þessi orð mín um gyðinga til baka, þau eru röng og særandi. Ég sýni ábyrgð mína í verki héðan í frá, og mun aldrei framar hallmæla gyðingum, hvar sem þeir búa í heiminum,“ skrifar Páll Óskar í yfirlýsingu sinni, en segist standa við harða gagnrýni sína á stjórnvöld í Ísrael.

„Ríkisstjórn Ísraels, Ísraelsher og stjórnarstefna þeirra fær aftur á móti engan afslátt. Restin af ummælunum stendur. Heimurinn hefur orðið vitni að áratuga ofbeldi gegn Palestínumönnum og mörgum þótt hrikalegt að fólkið sem Helförin beindist gegn skuli ganga fram með þeim hætti sem Ísraelsher gerir.

Eins og gefur að skilja hafa þessar alhæfingar mínar, að blanda saman gyðingum við stjórnarstefnu zíonista, vakið hörð viðbrögð sem ég tek fúslega ábyrgð á. En eitt af kommentunum sem ég hef séð og er hjartanlega sammála er eftirfarandi,“ skrifar Páll Óskar og vísar til þess sem hér er ritað að neðan:

„Mistökin sem Palli gerir hér er að tala um „gyðinga“ í staðinn fyrir „ríkisstjórn Ísraels“. Ríkisstjórn Ísraels er hópur stríðsglæpamanna sem halda heilli þjóð í gíslingu og reyna að þurrka hana út hægt og rólega, oft með aðferðafræði sem tekin er beint úr helförinni. Gyðingar eru bara fólk, eins mismunandi og þeir eru margir, búsettir um allan heim og margir hverjir harðir andstæðingar Ísraelsríkis.“



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert