Slökkvilið vanbúin fyrir gróðurelda

Aukin hætta er talin á því að miklir gróðureldar brjótist …
Aukin hætta er talin á því að miklir gróðureldar brjótist út hér á landi, sérstaklega í þétt grónum sumarhúsabyggðum. Slökkvilið hafa hér víða þurft að berjast við erfiða gróðurelda, meðal annars í Heiðmörk þar sem þessi mynd var tekin 2012 þegar á fimmta tug manna tók þátt í aðgerðum. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

„Það þarf að verða hugarfarsbreyting varðandi búnað og annað fyrir slökkviliðið. Þetta flokkast ekki undir neitt annað en almannavarnaástand ef svona gerist.“

Þetta segir Bjarni Kristinn Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð. Hann tekur undir varnaðarorð Trausta Jónssonar, sérfræðings í veðurfarsrannsóknum, í Morgunblaðinu um helgina þess efnis að aðeins væri tímaspursmál hvenær mjög slæmir gróðureldar myndu brjótast út í þétt grónum sumarbústaðabyggðum hér.

„Því miður finnst mér gæta sofandaháttar gagnvart þessu hjá stjórnvöldum,“ segir Bjarni ennfremur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert