Tillögur gætu bakað borginni bótaskyldu

Við Furugerði. Drög að húsum við Bústaðaveg. Rætt er um …
Við Furugerði. Drög að húsum við Bústaðaveg. Rætt er um 32 íbúðir. Íbúar telja nýbyggingarnar munu rýra verðmæti húseigna þeirra. Teikning/ARKÍS

Íbúar við Furugerði í Reykjavík áskilja sér rétt til að krefja Reykjavíkurborg um skaðabætur ef fyrirhuguð tillaga um þéttingu byggðar við götuna verður að veruleika.

Þetta kemur fram í greinargerð lögmanns íbúa til borgarinnar. Telja íbúarnir áformin „bera vott um hreina græðgi á kostnað íbúa í nágrenninu og þeirra sem eiga eftir að búa í viðkomandi húsi“.

Þá telja þeir að fasteignir í nágrenninu muni falla í verði um leið og tillagan verður samþykkt. Því áskilja þeir sér rétt til bóta, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert