Grunaður um ítrekaðan þjófnað úr fríhöfninni

Frá fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli.
Frá fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Eggert

Karlmaður á sextugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5. mars vegna gruns um ítrekaðan þjófnað á varningi úr fríhöfn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.  Þegar hann var handtekinn nú síðast  í flugstöðinni fundust í fórum hans sjö sígarettukarton, áfengi og ilmvötn, samtals að verðmæti um 125 þúsund krónur.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að talið sé að maðurinn tilheyri hópi manna af erlendum uppruna sem stundi með skipulögðum hætti þjófnað á dýrum varningi úr verslunum í flugstöðinni en þó aðallega á sígarettum. Kom fyrst til afskipta af hópnum í ágúst 2018 og fór þá hluti hópsins af landinu en karlmaðurinn er búsettur hér á landi og hefur haldið uppteknum hætti, segir í tilkynningunni.

Stundaði hópurinn að kaupa ódýra flugfarmiða og skrá sig til flugs en í stað þess að fara í flugið lét hópurinn greipar sópa um verslanir í brottfarasal flugstöðvarinnar. Upp komst þegar háttalagið þegar tollverðir í flugstöð Leifs Eiríkssonar stöðvuðu ferðir einstaklinga úr hópnum.  Við húsleit á heimilum grunaðra var lagt hald á mikið magn sígarettukartona og annars konar varnings sem talinn er vera úr verslunum í flugstöðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert