Bergþór lætur af formennsku

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, hefur kosið að stíga til hliðar sem formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis vegna ósættis með formennsku hans og mun Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrsti varaformaður nefndarinnar, taka við sem formaður tímabundið þar til lausn finnst í málinu.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Vinstri hreyfingunni - grænu framboði, Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum vegna málsins. Þar segir að umhverfis- og samgöngunefnd hafi verið óstarfhæf um tíma sem truflað hafi störf Alþingis. Þingflokksformenn hafi reynt að finna lausn á málinu en án árangurs.

Fréttatilkynningin er svohljóðandi:

„Umhverfis- og samgöngunefnd hefur nú verið óstarfhæf um tíma og hefur það trufla[ð] störf Alþingis. Ekki hefur verið fundað í nefndinni síðan 29. janúar. Þingflokksformenn allra flokka hafa leitað leiða til að vinna úr stöðunni, án árangurs. Samkvæmt samkomulagi um nefndarformennsku minnihlutans hefur [sic] kom þessi nefndarformennska í hlut Miðflokksins. Miðflokkurinn hefur ekki viljað skipta um sinn fulltrúa í nefndinni.

Bergþór Ólason hefur nú kosið að stíga til hliðar úr formannssætinu. Jón Gunnarsson mun taka við formennsku í nefndinni tímabundið á meðan reynt er að finna lausn í málinu sem allir geta sætt sig við. Ari Trausti Guðmundsson tekur við sem 1. varaformaður og Líneik Anna Sævarsdóttir verður 2. varaformaður.

Hluti af ábyrgð þeirra sem hafa meirihluta á Alþingi er að tryggja að störf þingsins geti gengið eðlilega fyrir sig. Því telja þingmenn stjórnarflokkanna eðlilegt að þetta sé lausnin á meðan samkomulag næst ekki um annað fyrirkomulag.

Það er öllum ljóst að um tímabundna lausn sé að ræða til að koma störfum nefndarinnar í rétt horf. Ef og þegar aðstæður breytast eru stjórnarflokkarnir reiðubúnir að endurskoða þessa stöðu og telja raunar mikilvægt að slíkt endurmat eigi sér stað fyrir þinglok. Þar sem hér er um tímabundna ráðstöfun að ræða líta stjórnarflokkarnir ekki svo á að taka þurfi upp allt samkomulag stjórnar og stjórnarandstöðu um formennsku í fastanefndum Alþingis að svo stöddu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert