Félagsmálaráðuneytið og Neytendasamtökin undirrituðu í dag samning um að Neytendasamtökin sinni áfram leigjendaaðstoð fyrir leigjendur íbúðarhúsnæðis, líkt og þau hafa gert frá árinu 2011.
Þeir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, undirrituðu samninginn sem gildir til næstu áramóta, að því er fram kemur í frétt á vef Stjórnarráðsins.
Þjónustan, samkvæmt samningnum, felur í sér að veita leigjendum íbúðarhúsnæðis upplýsingar um rétt þeirra og skyldur samkvæmt húsaleigulögum og að veita ráðgjöf er upp kemur ágreiningur vegna leigusamninga. Er þjónustan leigjendum að kostnaðarlausu.
Leigjendaaðstoðin er með símatíma á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 12:30-15:00. Þá eru á vef hennar aðgengilegar ýmsar upplýsingar um réttindi og skyldur leigjenda og leigusala.