Íslendingafélagið í New York fagnaði 10 ára afmæli lýðveldis Íslands

Ljósmynd/Empire

„Þessi mynd kom nýlega í ljós þegar við vorum að skoða myndasafnið í eigu föður míns og urðum forvitin að vita meira um fólkið á myndinni,“ segir Marinó Már Magnússon, sonur Magnúsar Blöndals Jóhannssonar, tónskálds og píanóleikara, sem lést árið 2005.

Myndin er tekin í kvöldverði og dansleik Íslendingafélagsins í New York sem fram fór á Piccadilly-hótelinu 18. júní árið 1954, þegar 10 ára afmæli íslenska lýðveldisins var fagnað. Eins og sjá má voru gestir prúðbúnir af þessu tilefni og samkoman vel sótt. Af myndinni að dæma hafa gestir verið vel á annað hundraðið.

Teikning af hinu fræga Hótel Piccadilly við 45. stræti á …
Teikning af hinu fræga Hótel Piccadilly við 45. stræti á Manhattan. Hótelið stóð þarna til ársins 1982. Nú er þar Hotel Marriott Marquis.

Flutt voru ávörp og tónlist á Íslandskvöldinu svonefnda og Thor Thors sendiherra „mælti fyrir minni Íslands“, eins og segir í frétt Heimskringlu um samkomuna. Samkvæmt þeirri frásögn setti Gunnar Eyjólfsson, formaður Íslendingafélagsins, samkomuna og flutti stutta ræðu.

Með fréttinni fylgdi engin mynd og er ekki vitað hvort meðfylgjandi mynd hafi birst á prenti áður. Marinó var í það minnsta ekki kunnugt um það. Í frásögn Heimskringlu er einnig sagt frá fleiri viðburðum Íslendingafélagsins þetta sumar og greinilegt að starfsemin hefur verið töluverð og margir verið í félaginu.

Magnús Blöndal lék undir á píanó þetta kvöld á hótelinu, fyrst með tvísöng þeirra Guðmundu Elíasdóttur og Guðrúnar Tómasdóttur.

Ábendingar um nöfn á gestum vel þegnar

„Að því búnu fór fram helzta skemmtiatriði kvöldsins, sem var hylling Íslands í tónum, ljóðum og söng. Eru það ljóð frá ýmsum tímum sem eru sungin eða sögð fram. Komu þar fram Guðrún Camp, Guðmunda Elíasdóttir, Guðrún Tómasdóttir og Gunnar Eyjólfsson, en undirleik annaðist Magnús Bl. Jóhannsson, sem einnig hefur samið tónlistina,“ sagði ennfremur í frétt Heimskringlu um viðburðinn.

Magnús er fyrir miðju á fremsta hringborðinu til vinstri og við hlið hans er þáverandi eiginkona, Bryndís Sigurjónsdóttir. Thor Thors sendiherra er á þarnæsta hringborði fyrir aftan. Þekkja má Sigurð A. Magnússon rithöfund við hlið fremsta hringborðsins hægra megin en allar ábendingar lesenda um fleiri nöfn væru vel þegnar. Þannig væri áhugavert að ná tali af fólki sem var meðal gesta á Íslandskvöldinu góða og gæti rifjað þessa stund upp.

Senda má ábendingar á netfangið: ritstjorn@mbl.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert