Líkamsárás í strætóskýli kærð

Ein kæra vegna líkamsárásar hefur borist lögreglu vegna atviks í …
Ein kæra vegna líkamsárásar hefur borist lögreglu vegna atviks í strætóskýli í Kópavogi. mbl.is/Valgarður Gíslason

Ein kæra hefur verið lögð fram vegna líkamsárásar í strætóskýli í Kópavogi í gærkvöldi. Þetta staðfestir Þóra Jónasdóttir, stöðvarstjóri lögreglustöðvar 3 að Dalvegi, í samtali við mbl.is. Hún segir þolendur ekki hafa verið börn, en að einn einstaklingur hafi verið undir átján ára aldri.

Til­kynnt var til lög­reglu um mann í ann­ar­legu ástandi að ráðast að börn­um í strætó­skýli í gærkvöldi en maður­inn hafði hlaupið af vett­vangi.

Lögreglan náði geranda sem nú liggur undir grun um líkamsárás og er málið til rannsóknar. Þá leitaði einn einstaklingur sem varð fyrir árásinni á slysadeild vegna minni háttar áverka í kjölfar atviksins, meiðsli viðkomandi hafi hins vegar ekki komið í ljós í fyrstu.

Þóra segir ekki rétt að atvikið hafi átt sér stað á Nýbýlavegi eins og fjölmiðlar hafa greint frá, en hún staðfestir að málið hafi komið upp í Kópavogi.

Guðmundur Heiðar Helgason, markaðs- og upplýsingafulltrúi Strætó, staðfestir við mbl.is að vagnstjóri Strætó hafi haft samband við lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert