Í átak gegn sýklalyfjaónæmi

Svandís og Kristján Þór við undirritun yfirlýsingarinnar í dag.
Svandís og Kristján Þór við undirritun yfirlýsingarinnar í dag. mbl.is/Eggert

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og heilbrigðisráðherra undirrituðu í dag yfirlýsingu um sameiginlegt átak til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi.

Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir að sýklalyfjaónæmi hafi verið talsvert minna vandamál á Íslendi en í nálægum löndum en mikilvægt sé að stemma stigu við frekari útbreiðslu, en samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, Alþjóðadýraheilbrigðismálastofnuninni, Sóttvarnarstofnun Evrópusambandsins og Matvælaöryggisstofnun Evrópusambandsins er útbreiðsla sýklalyfjaónæmis ein stærsta heilbrigðisógn sem steðjar að mönnum.

„Með þessari undirritun liggur fyrir opinber stefna íslenskra stjórnvalda í baráttunni gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Það mikilvæga skref markar í mínum huga kaflaskil í þeirri baráttu og ber að þakka fyrir það góða starf sem unnið hefur verið á síðustu árum, m.a. starfshóp sem skilaði tillögum sínum árið 2017 og opinber stefna Íslands byggir nú á,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Starfshópur heilbrigðisráðherra skilaði tíu tillögum að aðgerðum sem miða að því að hefta útbreiðslu sýklalyfjaónæmis árið 2017 og líta sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og heilbrigðisráðherra svo á að tillögurnar marki opinbera stefnu stjórnvalda í málaflokknum.

Stýrihópur beggja ráðuneyta mun hafa það hlutverk að framfylgja stefnunni, en hópinn skipa þau Linda Fanney Valgeirsdóttir, sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir.

„Sýklalyfjaónæmi er grafalvarlegt vandamál sem verður að takast á við af mikilli alvöru með raunhæfum aðgerðum og víðtæku samstarfi. Sem heilbrigðisráðherra mun ég leggja af mörkum það sem í mínu valdi stendur til að sporna við þessari alvarlegu ógn,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert