SA fordæma meint lögbrot starfsmannaleigu

Byggingaverkamenn að störfum. Mynd úr safni.
Byggingaverkamenn að störfum. Mynd úr safni. mbl.is/​Hari

Samtök atvinnulífsins fordæma meint lögbrot starfsmannaleigunnar Menn í vinnu og hvetja aðildarfyrirtæki sín til að skipta eingöngu við starfsmannaleigur sem þau bera fullt traust til. Segir í yfirlýsingu SA að óverjandi sé að fyrirtæki skipti við starfsmannaleigur sem „ítrekað hafa orðið uppvísar að brotum á starfsmönnum.“

SA hafi í nánu samstarfi við þær starfsmannaleigur sem eiga aðild samtökunum, „unnið að því að skapa trausta umgjörð um starfsemi starfsmannaleiga“.

Þetta hafi m.a. verið gert með innleiðingu samábyrgðar verktaka á launum starfsmanna starfsmannaleiga. Undirrituðu SA og ASÍ í apríl í fyrra samkomulag sín á milli sem ætlað er að „auka traust til starfsemi starfsmannaleiga og tryggja réttindi starfsmanna þeirra,“ að því er segir í tilkynningunni.

„Þau mál sem komið hafa upp undanfarin misseri, og varða starfsmannaleigur sem ekki eiga aðild að SA, eru til þess fallin að skapa tortryggni gagnvart öllum starfsmannaleigum, einnig þeim sem leggja sig fram um að fylgja að öllu leyti reglum laga og kjarasamninga. Því er mikilvægt að innleiða sem fyrst þá vottun sem gert er ráð fyrir í samkomulagi SA og ASÍ um starfsmannaleigur og mun auðvelda fyrirtækjum að beina viðskiptum sínum til traustra starfsmannaleiga.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert