Stefnir í óefni í sjúkraflutningum

Sjúkraflutningabílar landsins eru sumir hverjir komnir til ára sinna.
Sjúkraflutningabílar landsins eru sumir hverjir komnir til ára sinna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ekki liggur enn fyrir hvort velferðarráðuneytið fái fjárheimild til að standa við opnun útboðs í nýja sjúkraflutningabíla og segir Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) alvarlegt ástand vera fyrirliggjandi í sjúkraflutningum á Íslandi.

Engin endurnýjun sjúkrabifreiða hafi átt sér stað síðan 2015 og búið sé að fresta í þrígang útboði nýrra bifreiða og segir í fréttatilkynningu LSS að ástandið sé fyrir löngu orðið alvarlegt og af því hafi LSS þungar áhyggjur.

„Í fyrra fól velferðarráðuneytið Sjúkratryggingum Íslands að bjóða út með hraði 25 sjúkrabifreiðar til þess að bregðast við bráðavöntun sem upp var komin. Í júlí 2018 var svo auglýst útboð en opnun þess hefur verið frestað vegna þess að ráðuneytið hefur ekki getað tryggt fjármögnun kaupanna. Fyrst um fjóra mánuði frá september til janúar, frá 10. janúar til 13. febrúar og nú til 13. mars,“ segir í tilkynningunni.

Samkvæmt upplýsingum LSS liggi hins vegar ekki enn fyrir hvort velferðarráðuneytið fái fjárheimild svo að hægt sé að standa við opnun útboðsins 13. mars. „Á meðan deila ríkið og Rauði krossinn um hvernig skuli haga uppgjöri sjúkrabílasjóðs sín á milli.“

Málið sé í gíslingu og á sama tíma safnist innkoma af sjúkraflutningum og framlög frá ríkinu í sjóðinn. „Þetta ástand er að mati LSS algjörlega óviðunandi.“

Sjúkrabílaflotinn á landsvísu telur 84 bíla. Samkvæmt viðmiðunartölum um aldur og akstur sjúkrabifreiða þurfi að endurnýja yfir helming flotans, eða 47 bíla, á þessu ári.

Ástandið sé fyrir löngu orðið alvarlegt og LSS hafi af því þungar áhyggjur. „Vöntunin heldur áfram að aukast og ástandi flotans hrakar. Dæmum fjölgar um bilanir á þessum mikilvægu flutningstækjum og ljóst er orðið að öryggi starfsmanna og skjólstæðinga er ógnað.“

Segir í yfirlýsingunni að LSS undirstriki alvarleika málsins. Það stefni í algjört óefni, enda taki um 10 mánuði frá því gengið er frá samningum á grundvelli útboðsins þar til fyrstu bifreiðar eru afgreiddar.

„Ríkið ber ábyrgð á rekstri sjúkraflutninga í landinu. Þetta mál þarf að leysa án tafar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert