Lögreglan innsiglaði skemmtistaðinn Shooters

Lögreglan hefur innsiglað skemmtistaðinn Shooters í Austurstræti.
Lögreglan hefur innsiglað skemmtistaðinn Shooters í Austurstræti. Skjáskot/ja.is

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur innsiglað skemmtistaðinn Shooters í Austurstræti. Lög­regl­an fram­kvæmdi átta hús­leit­ir í um­dæm­inu seint í fyrrinótt og í gær­morg­un, m.a. á skemmti­stað í miðborg­inni, vegna grun­semda henn­ar um um­fangs­mikla brot­a­starf­semi. Ekki hefur fengist staðfest hvort lokun Shooters tengist þeirri rannsókn en lögreglan mun ekki tjá sig um rannsóknina umfram það sem kom fram í tilkynningu í morgun.

Í umfjöllun Vísis um málið er haft eftir starfsmönnum á bar við hliðina á Shooters að þeir hafi fyrst tekið eftir innsiglinu í gær. Þá kemur fram á vef Fréttablaðsins að blaðið hafi heimildir fyrir því að innsiglun staðarins tengist húsleitum lögreglu um helgina.

Í húsleitunum átta var lagt hald á gögn, búnað og fjár­muni, en öll mál­in tengj­ast. Í tilkynningu lögreglu segir að höfð hafi verið af­skipti af tutt­ugu og sex ein­stak­ling­um og voru tíu þeirra færðir á lög­reglu­stöð til yf­ir­heyrslu, en síðan sleppt úr haldi að henni lok­inni, að því er seg­ir í frétta­til­kynn­ingu frá lög­regl­unni.

Rannsóknin er samvinnuverkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og skattrannsóknarstjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert