Stjórnvöld hvött til að þrýsta á Pompeo

AFP

Félagar í fimm ungliðahreyfingum skora á íslensk stjórnvöld að þrýsta á Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að beita sér fyrir því að mannréttindabrot gegn börnum á landamærum þarlendis verði stöðvuð.

Ráðherrann er væntanlegur til Íslands á föstudaginn og munu Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra funda með honum. 

„Nauðsynlegt er að ríkisstjórn Íslands fordæmi aðgerðir bandarískra stjórnvalda en sé ekki aðgerðarlaus áhorfandi í slíkum alvarlegum brotum. Ekkert barn á að þurfa að alast upp í varðhaldi og engu barni, né fjölskyldu þess, skal refsað fyrir að leita öryggis. Það er ekkert pólitískt við það að bjarga lífi barna og það er mikilvægt að hafa í huga að fólk sem er á flótta, til að halda lífi, hefur rétt á réttlátri yfirheyrslu, réttarhaldi og mannúðlegri málsmeðferð.

Samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna ber ríkjum að gera það sem barni er fyrir bestu þegar kemur að ákvörðunum er snerta börn. Stefna Bandaríkjanna brýtur á ákvæðum sáttmálans og vinnur gegn tilgangi hans. Bandaríkin eru ekki að aðskilja foreldra og börn með þeirra hagsmuni að leiðarljósi heldur sem fyrirbyggjandi refsingu gegn óskráðri komu foreldra þeirra inn í landið. Stefnan mun hafa skelfilegar afleiðingar fyrir börnin og foreldra þeirra,“ segir í áskorun ungliðahreyfinganna.

Ung vinstri græn, Ungir jafnaðarmenn, Ungir píratar, ungir meðlimir Sósíalistaflokksins og Uppreisn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert