Fjögurra bíla árekstur á Sæbraut

Fjögurra bíla árekstur varð á Sæbraut um níuleytið í morgun og varð a.m.k. einn bílstjóranna fyrir minni háttar meiðslum. Fjarlægja þurfti tvo bílanna af vettvangi með kranabíl.

Fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að það hafi verið lögreglumenn við almennt eftirlit sem komu að árekstrinum í morgun, en slæmt skyggni og mikil hálka var á vettvangi er áreksturinn átti sér stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert