Innkalla allar vörur vegna listeríumengunar

Listeríusýking orsakast af bakteríunni Listeria monocytogenes. Bakteríuna má finna í …
Listeríusýking orsakast af bakteríunni Listeria monocytogenes. Bakteríuna má finna í ógerilsneyddri mjólk og afurðum hennar og í hráum fiski. Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Ópal sjávarfang hefur innkallað allar reyktar afurðir sínar úr verslunum vegna gruns um listeríumengun.

Áður hafði allur graflax frá fyrirtækinu verið innkallaður. 

Innköllunin á öllum reyktum afurðum er unnin í samráði við Matvælastofnun, sem segir frekari rannsókn á örverumengun hjá fyrirtækinu gefa til kynna að ekki hafi tekist að uppræta listeríumengun og að fleiri afurðir kunni að vera mengaðar af bakteríunni. 

Þá hefur öll framleiðsla og dreifing verið stöðvuð á meðan unnið er að úrbótum undir eftirliti Matvælastofnunar.

Greint var frá því í vikubyrjun að Mat­væla­stofn­un var­aði við neyslu á til­tekn­um lot­um af reykt­um laxi og fjalla­bleikju frá Ópal sjáv­ar­fangi. Innköllunin nú nær hins vegar til allra lotunúmera á reyktum afurðum (birkireyktum, hangireyktum og heitreyktum) sem eru á markaði (síðustu notkunardagar í janúar, febrúar og mars).

Tekur innköllunin yfir allan kaldreyktan lax, heitreyktan lax, reykta fjallableikju, reyktan makríl og síld: bita, hálfflök, flök, kubba, hnakka, sneiðar, áleggslax, laxakurl. 

Eru þeir sem eiga í frysti hjá sér reyktar afurðir frá Ópal sjávarfangi frá því í desember eða janúar einnig beðnir um að hafa samband og skila þeim gegn endurgreiðslu.

Listeriamonocytogenes getur orsakað sjúkdóm bæði hjá mönnum og dýrum og kallast þessi sjúkdómur listeriosis, að því er segir í tilkynningu MAST. Einkenni sjúkdómsins eru mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Alvarlegri einkenni eru heilahimnubólga í ungbörnum, blóðeitrun og þá getur listeriosis einnig valdið fósturláti. Í einstaka tilfellum getur bakterían valdið dauða og er þá yfirleitt um að ræða einstaklinga með skert ónæmiskerfi.

Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum hins vegar ekki sjúkdómi. Barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn og einstaklingar með skert ónæmiskerfi eru hins vegar í áhættuhópi. Þá eru hópsýkingar af völdum listeríu afar sjaldgæfar og er oftast um að ræða einstaklingssýkingar.

  • Dæmi um vöruheiti frá fyrirtækinu eru: Ópal reyktur / birkireyktur / hangireyktur / heitreyktur lax (laxabiti, flök, kubbar, hnakkar, sneiðar, áleggslax, laxakurl), Ópal reykt / birkireykt / hangireykt fjallableikja (bitar og sneiðar), Ópal heitreykt makrílflök, Ópal léttreykt síldarflök Framleiðandi: Ópal sjávarfang ehf., Grandatröð 4, 220 Hafnarfjörður
  • Dreifingaraðilar: Verslanir 10-11, verslanir Hagkaupa, verslanir Nettó, verslanir Kjörbúðarinnar, verslanir Krambúðarinnar, Melabúðin, verslanir Iceland og verslunin Kvosin

Neytendum sem keypt hafa vörurnar er bent á að neyta þeirra ekki og hafa samband við fyrirtækið um endurgreiðslu í síma 517 66 30 eða á netfanginu opal@opal.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert