Netið verði betri staður fyrir ungmenni

Frá pallborðsumræðum ungmenna í Mílanó.
Frá pallborðsumræðum ungmenna í Mílanó. Ljósmynd/SAFT

Í tilefni 16 ára afmælis Alþjóðalega netöryggisdagsins 5. febrúar síðastliðinn stóð Evrópuráð stafrænnar velferðar (European council for digital good) fyrir því að ungmenni um alla Evrópu segðu sína skoðun á hver væru mikilvægustu markmiðin til að gera netið að betri stað fyrir ungmenni.

Ungmennin fengu það verkefni að velja 16 markmið sem unnið yrði að til að gera netið að betri stað fyrir ungt fólk en ungmennaráð SAFT tók þátt í verkefninu fyrir Íslands hönd. 

Kosning fór fram í janúar um hvaða markmið ættu að vera valin en um 2.500 ungmenni frá 35 löndum kusu og voru niðurstöðurnar kynntar á veggspjöldum á fundi í Mílanó á Ítalíu. 

Veggspjaldið þar sem sjá má verkefnin 16 til að gera …
Veggspjaldið þar sem sjá má verkefnin 16 til að gera netið að betri stað fyrir ungt fólk. Ljósmynd/Saft

Markmiðunum á veggspjaldinu eru raðað upp eftir hversu mörg atkvæði þau fengu. Til dæmis fékk markmið númer eitt, einkalíf og upplýsingaöryggi, flest atkvæði í kosningunni. Númer tvö fékk næstflest og svo koll af kolli.

Katrín Lilja Árnadóttir og Hafrún Arna Jóhannsdóttir voru fulltrúar ungmennaráðs SAFT á fundinum og tóku virkan þátt í umræðum og stefnumótun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert