Slasaður eftir árekstur við Kalkofnsveg

mbl.is/Eggert

Harður árekstur varð við Kalkofnsveg um hálfeittleytið í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu lentu tveir bílar þar í árekstri.

Bæði dælubíll og sjúkrabíll voru sendir á vettvang og var einn fluttur á Landspítalann til aðhlynningar. Ekki er þó talið að meiðsl hans séu alvarleg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert