Efling leggur fram gagntilboð

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. mbl.is/​Hari

Samninganefnd Eflingar samþykkti í kvöld að leggja fram gagntilboð á morgun við tilboð þriggja ára kjarasamninga sem Samtök atvinnulífsins gerðu stéttarfélögum í gær. 

Þetta kemur fram á vef Eflingar þar sem segir að í tilboði félagsins sé komið til móts við kauphækkunarboð Samtaka atvinnulífsins, með því skilyrði að yfirvöld setji fram og standi við skattkerfisbreytingar.

Stjórn Eflingar og samninganefnd samþykktu svo ályktun um skattastefnu, þar sem fyrsta skrefið fælist í þeim skattatillögum sem Stefán Ólafsson og Indriði H. Þorláksson hafa mótað í nýútgefinni skattaskýrslu sinni. Þar er lagt til að tekjuskattar á 90% almennings myndu lækka, en að tekjuhæstu fimm prósentin myndu borga meira. Stjórnin og samninganefndin krefjast þess að aðgerðirnar sem skýrslan leggur til verði innleiddar „strax á næstu fjárlögum, og að skattbyrði tekjulægstu hópa verði með öllu aflétt eigi síðar en árið 2021.“

Samninganefndin krafðist enn fremur að þetta yrði gert að forsenduákvæði kjarasamninga, svo eftirfylgni yfirvalda yrði tryggð.

VR, Efling, VLFA og VLFG funda með SA hjá ríkissáttasemjara klukkan 11:15 í fyrramálið. 

Ályktun stjórnar og samninganefndar Eflingar í heild sinni: 

Stjórn og samninganefnd Eflingar – stéttarfélags þakka Stefáni Ólafssyni og Indriða Þorlákssyni fyrir afar vandaða vinnu við smíði skýrslunnar „Sanngjörn dreifing skattbyrðar“ sem út kom í febrúar 2019.

Ljóst er að tillögur skýrslunnar víkja frá [ý]trustu kröfum í kröfugerð Eflingar á hendur ríkinu og fara í sumum atriðum aðrar leiðir en þar er lagt til. Engu að síður myndu tillögurnar, kæmu þær til framkvæmda, létta skattbyrði lægstu launa um 40-60% prósent og færa skattkerfið verulega í réttlætisátt. Tillögurnar eru framkvæmanlegar á einu ári og í skýrslunni er að auki bent á fjölda leiða til að fjármagna enn frekari lækkun skattbyrði lægstu hópa.

Stjórn Eflingar – stéttarfélags styður tillögur skýrslunnar en með þeim fyrirvara að þær séu einungis fyrsta skref í áttina að því markmiði að gera lægstu laun með öllu skattfrjáls. Þess er krafist að þær aðgerðir sem skýrslan leggur til verði innleiddar strax á næstu fjárlögum, og að skattbyrði tekjulægstu hópa verði með öllu aflétt eigi síðar en árið 2021.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert