„Það er allt lagt í þetta,“ segja krakkarnir í 10. bekk í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði en þar hefur myndast hefð fyrir því að setja upp metnaðarfullar sýningar á síðustu önninni í skólanum. Síðustu vikur hafa farið í stífar æfingar og undir það síðasta eru margir frá morgni til kvölds við æfingar.
Í ár er það „eitís“ sýningin Fútlúz sem krakkarnir setja upp og þau eru sammála um að andrúsmloft níunda áratugarins sé sérstaklega skemmtilegt. Ég kíkti á æfingu í skólanum í vikunni og fylgdist með söng- og dansatriði en verkið verður sýnt í skólanum um helgina.
Plakatið fyrir sýninguna er metnaðarfullt eins og sýningin.
Þar sem Footloose er annars til umræðu er ekki úr vegi að kíkja á eftirminnileg dansspor hjá Kevin Bacon úr upphaflegu myndinni frá árinu 1984.