Bíll valt á Vesturlandsvegi í Kollafirði á tíunda tímanum í kvöld. Ökumaður var fluttur á slysadeild Landspítala en meiðsli hans eru ekki talin alvarleg.
Samkvæmt upplýsingum úr dagbók lögreglu var ökumaðurinn vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins en grunur leikur á að viðkomandi hafi ekið undir áhrifum fíkniefna eða lyfja. Ökutæki flutt af vettvangi með dráttarbifreið.
Tildrög slyssins liggja ekki fyrir.