Tveir með fyrsta vinning í Lottó

Tveir heppnir lottó­spil­arar voru með all­ar fimm töl­ur rétt­ar í lottóút­drætti kvölds­ins og hlýtur hvor þeirra 3,8 milljónir króna í sinn hlut. Annar vinningshafinn er í áskrift en hinn keypti miðann á lotto.is.

Einn er 339 þúsund krónum ríkari en hann var með bónusvinninginn. Sá heppni spilari er í áskrift.

Eng­inn var með fyrsta vinn­ing í Jóker en tveir miðahaf­ar hlutu ann­an vinn­ing. Annar þeirra var með miðann í áskrift en hinn keypti miðann í N1, Hafnargötu í Reykjanesbæ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert