Lögregla óskar eftir vitnum að óhappi

mbl.is/​Hari

Lögreglan á Vesturlandi óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Akranesvegar og Akrafjallsvegar á föstudag.

Í færslu lögreglunnar á Facebook segir að óhappið hafi orðið um klukkan 15:25. 

Fólk sem varð vitni að óhappinu er beðið um að hafa samband við lögreglu í gegnum einkaskilaboð á Facebook-síðu lögreglunnar eða í síma 444-0300.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert