Röktu ferðir ræningja í snjónum

mbl/Arnþór

Rán var framið í kjörbúð á Akureyri á sjöunda tímanum í morgun. Karlmaður á þrítugsaldri ógnaði tveimur starfsmönnum með hnífi og krafðist þess að fá afhenta peninga úr sjóðsvélum. Maðurinn hljóp á brott úr versluninni þegar hann var kominn með peningana.

Lögreglu hafði verið gert viðvart meðan á ráninu stóð og gat brugðist skjótt við. Gat lögreglan rakið ferðir mannsins í nýföllnum snjó og gekk að honum þar sem hann hafði falið sig. 

Fram kemur í færslu lögreglunnar að maðurinn hafi ekki veitt mótspyrnu við handtöku, en hann sé talinn hafa verið undir áhrifum bæði áfengis og fíkniefna. Hann er nú vistaður í fangageymslu þangað til hægt verður að yfirheyra hann.

Lögreglan segir peningaupphæðina vera óverulega og rannsókn málsins miði vel. Ekki er talið að hann eigi sér vitorðsmenn.

Starfsfólki verslunarinnar var boðin áfallahjálp og verður ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert