35 teknir fyrir vímuakstur

Ljósmynd/Lögreglan

Síðasta vika var óvenjuslæm þegar kemur að fjölda umferðarslysa á höfuðborgarsvæðinu en slysin voru fimmtán og í þeim slösuðust tuttugu og fjórir, að því er segir á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

„Í þremur tilvikum er grunur um að ökumaðurinn hafi verið ölvaður og í einu tilviki að ökumaður hafi verið undir áhrifum lyfja. Hér er því verk að vinna og ekki batnar ástandið þegar horft er til þess að um helgina voru þrjátíu og fimm ökumenn staðnir að ölvunar- og fíkniefnaakstri í umdæminu. Leiða má líkur að því að umferðarslysin í síðustu viku hefðu orðið enn fleiri ef ekki hefði komið til þeirra afskipta,“ segir á Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert