Stafrænt kynferðisofbeldi til umræðu

Fundurinn fer fram í Háskólanum í Reykjavík.
Fundurinn fer fram í Háskólanum í Reykjavík. Ljósmynd/HR

Nú klukkan 14:00 hefst fundur í Háskóla Reykjavíkur um stafrænt kynferðisofbeldi, en frumvarp sem tekur á slíku ofbeldi liggur nú fyrir Alþingi í annað skiptið. Verður meðal annars rætt um stöðuna á slíku ofbeldi, hvaða refsingar búa við slíkum brotum og þá vernd sem er til staðar. 

Einnig verða kynntar niðurstöður úr könnun um nektarmyndasendingar unglinga á samskiptamiðlum og hvernig stafrænt ofbeldi er gegn konum á Norðurlöndunum. Fundarstjóri er Halla Gunnarsdóttir, formaður stýrihóps um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðisofbeldi og ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum.

Hægt er að fylgjast með fundinum í spilaranum hér að neðan, en dagskrána má finna þar undir.

Dagskrá

14.00 – 14.10 Setning

14.10 – 14.40 Vernd gegn stafrænu kynferðisofbeldi: María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur og doktorsnemi við Sussex-háskóla í Bretlandi

14.40 – 15.00 Heimfærsla stafræns kynferðisofbeldis til refsiákvæða og dómaframkvæmd: Kolbrún Benediksdóttir varahéraðssaksóknari

15.00 - 15.15 Frumvarp um stafrænt kynferðisofbeldi: Helgi Hrafn Gunnarsson, alþingismaður og fyrsti flutningsmaður frumvarpsins

15.15 – 15.30 Kaffihlé

15.30 – 15.45 Nektarmyndsendingar unglinga á samskiptamiðlum. Niðurstöður úr könnun Rannsókna og greiningar, Ungt fólk 2018.

Dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir dósent og dr. Rannveig Sigurvinsdóttir lektor við sálfræðisvið HR

15.45 – 16.00 Stafrænt ofbeldi gegn konum á Norðurlöndum: Dr. Ásta Jóhannsdóttir, nýdoktor í fötlunarfræðum

16.00 – 16.15 Myndin af mér: Brynhildur Björnsdóttir leikstjóri

16.15 – 17.00 Pallborðsumræður 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert