Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og dr. Skúli Skúlason, formaður stjórnar Lyfjaeftirlits Íslands, hafa skrifað undir langtímasamning um starfsemi Lyfjaeftirlitsins og fjármögnun þess að því er fram kemur í frétt á vef Stjórnarráðsins.
Lyfjaeftirlit Íslands er sjálfstæð stofnun sem komið var á laggirnar sl. vor og tók hún þá við eftirlitshlutverki Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, en stjórnvöldum ber samkvæmt íþróttalögum að sinna lyfjaeftirliti.
„Sjálfstætt lyfjaeftirlit er mikilvægt fyrir íþróttalífið í landinu og ímynd íþróttafólksins okkar út á við. Hlutverk þess í forvarnar- og fræðslumálum er einnig brýnt, ekki síst á tímum þegar vísbendingar eru um að lyfjanotkun sé að færast í aukana. Ég fagna því til að mynda að Lyfjaeftirlit Íslands hafi kynnt líkamsræktarstöðvum aðgerðir gegn notkun ólöglegra árangursbætandi efna á þeim vettvangi,“ er haft eftir ráðherra í fréttinni.
Lyfjaeftirlit Íslands skipuleggur og framkvæmir lyfjaeftirlit á Íslandi, og birtir og kynnir bannlista um efni þau sem óheimilt er að nota í íþróttum. Þá sinnir Lyfjaeftirlitið einnig fræðslu og forvörnum gegn lyfjamisnotkun og stendur fyrir fræðslufyrirlestrum um lyfjamál í háskólum, framhaldsskólum og hjá íþróttasamböndum og -félögum.
Loks tekur Lyfjaeftirlitið þátt í alþjóðlegu samstarfi í tengslum við baráttuna gegn lyfjamisnotkun í íþróttum og sinnir eftirliti í samræmi við þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands.