Reiði og sár vonbrigði

Ragnar Þór Ingólfsson og Vilhjálmur Birgisson á fundi í höfuðstöðvum …
Ragnar Þór Ingólfsson og Vilhjálmur Birgisson á fundi í höfuðstöðvum ASÍ í dag. mbl.is/​Hari

Stéttarfélögin fjögur sem leitt hafa yfirstandandi kjaraviðræður, VR, Efling, VLFA og VLFG, lýsa reiði og sárum vonbrigðum með þær tillögur sem ríkisstjórnin lagði fram á fundi með forseta og varaforsetum ASÍ í dag.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu.

„Viðræður hafa staðið tæpt eftir að SA lögðu fram tilboð í síðustu viku sem leitt hefði til kaupmáttarrýrnunar fyrir stóra hópa launafólks. SA höfnuðu í kjölfarið sanngjörnu gagntilboði samflotsfélaganna,“ segir í tilkynningunni.

Þar kemur fram að vonir hafi staðið til að aðkoma stjórnvalda gæti hleypt glæðum í viðræðurnar en ljóst sé að tillögur þeirra geri þær vonir að engu.

Fundað verður í baklandi stéttarfélaganna á næstu sólarhringum og á fimmtudag funda formenn félaganna með SA hjá ríkissáttasemjara.

„Samflotsfélögin standa sameinuð og staðföst í kröfunni um að launafólk geti lifað af launum sínum og að stjórnvöld geri löngu tímabærar kerfisbreytingar í réttlætisátt.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert