Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkar

Milli janúar- og desembermánaðar hækkaði verð fjölbýlis um 0,4% og …
Milli janúar- og desembermánaðar hækkaði verð fjölbýlis um 0,4% og sérbýlis um 0,3% mbl.is/Ómar Óskarsson

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,4% á milli mánaða í janúar að því er fram kemur í frétt á vef Íbúðalánasjóðs, sem byggir á nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands.

Mælist árshækkun vísitölu íbúðaverðs nú 5,2% samanborið við 5,9% hækkun í desember frá sama mánuði árið áður.

Raunverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. vísitala íbúðaverðs í hlutfalli við vísitölu neysluverðs, lækkaði örlítið á milli mánaða. Árshækkun raunverðs íbúða mælist nú 1,8% samanborið við 2,1% í desember, en raunverð íbúða hefur þar með hækkað um ríflega 55% frá því í janúar 2013.

Milli janúar- og desembermánaðar hækkaði verð fjölbýlis um 0,4% og sérbýli um 0,3%. Mælist tólf mánaða hækkunartaktur sérbýlis nú um 5,8%, samanborið við 6,3% í desember.

Verð fjölbýlis hefur nú hækkað um 4,8% frá janúar í fyrra, en 12 mánaða hækkun mældist í þeim flokki um 5,5% í desember.

Kort/Íbúðalánasjóður
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert