BSRB vill hátekjuskatt

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Ljósmynd/BSRB

Tillögur stjórnvalda að breytingum á skattkerfinu sem voru kynntar í gær ganga ekki nægilega langt í átt að jöfnuði og réttlæti í samfélaginu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu formannaráðs BSRB. 

Bandalagið leggur áherslu á að skattkerfið eigi að reka með því hugarfari að fólk greiði inn eftir efnum og taki út eftir þörfum. Þeir sem eru betur stæðir ættu að bera meiri byrðar en hinir sem eru verr staddir.

„Það er því jákvætt skref að til standi að fjölga skattþrepum en tillögur ríkisstjórnarinnar til breytinga á skattkerfinu eru ekki í samræmi við væntingar BSRB,“ segir í yfirlýsingunni.

Tillögur ríkisstjórnarinnar fela í sér að á næstu þremur árum verði skattbyrði einstaklinga lækkuð sem nemur alls 6.760 krónum mánaðarlega. Breytingarnar eiga að koma í þremur áföngum og á sá fyrsti ekki að koma til framkvæmda fyrr en í byrjun árs 2020 þegar skattbyrðin á að lækka um 2.253 krónur.

„Það veldur vonbrigðum hve lítil lækkunin er og enn meiri vonbrigðum hversu seint hún á að koma til framkvæmda.“

Skattar ekki lækkaðir á hátekjufólk

Fram kemur í tillögunum að lækkunin taki ekki aðeins til þeirra tekjulægstu heldur einnig þeirra sem hafa hærri tekjur. „BSRB leggst gegn því að skattar verði lækkaðir fyrir hátekjufólk og telur að nýta eigi það svigrúm sem stjórnvöld hafa til skattalækkana til þess að lækka álögur á þá tekjulægstu,“ segir í yfirlýsingunni.

„Samfélagið hefur kallað eftir réttlæti í skiptingu tekna og ekki síst í umræðu um ofurlaun. Ein leið til að mæta því ákalli er að innleiða hátekjuþrep í skattkerfið. Samanborið við hin Norðurlöndin er Ísland með færri skattþrep, hærri grunnprósentu og lægri hámarksprósentu. Með því að taka upp hátekjuskatt nýtist skattkerfið betur sem tekjujöfnunartæki.“ 

Formannaráð BSRB lýsir einnig yfir vonbrigðum með að ekki hafi verið gengið lengra í tillögum ríkisstjórnarinnar til að draga úr „bröttum tekjutengingum í barnabótakerfinu“.

„Bandalagið leggur áherslu á mikilvægi þess að barnabætur, húsnæðisbætur og vaxtabætur eigi að vera almennur stuðningur við fjölskyldur líkt og á öðrum Norðurlöndum en ekki eingöngu fyrir þá tekjulægstu líkt og reyndin hefur verið hér á landi undanfarin ár.“ 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert