Óska eftir vitnum að líkamsárás

mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar nú eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað á mótum Vegmúla og Suðurlandsbrautar í Reykjavík í hádeginu í dag, eða um kl. 12.50, en þar veittist karlmaður að ungri konu.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu leikur grunur á að um sé að ræða sama mann og var handtekinn í kjölfar þess að hann réðst á unga konu eftir að hafa sparkað í bifreið hennar á Háaleitisbraut.

Biður lögreglan þá sem kunna að hafa orðið vitni að líkamsárásinni að hafa samband í síma 444-1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið 0725@lrh.is eða í einkaskilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert