Skora á stjórnvöld að bregðast við af hörku

Neytendasamtökin segja sér hafa borist fjöldi ábendinga og fyrirspurna undanfarið …
Neytendasamtökin segja sér hafa borist fjöldi ábendinga og fyrirspurna undanfarið vegna þeirrar starfsemi sem var afhjúpuð hjá Procar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Stjórn Neytendasamtakanna skorar á stjórnvöld að bregðast við af fullri hörku til varnar neytendum vegna sviksamlegrar háttsemi bílaleigunnar Procar.

Þetta kemur fram í ályktun sem Neytendasamtökin sendu frá sér í kvöld. Segja þau samtökunum hafa borist fjöldi ábendinga og fyrirspurna undanfarið vegna þeirrar starfsemi sem var afhjúpuð hjá Procar.

„Stjórn Neytendasamtakanna skorar á stjórnvöld að bregðast við af fullri hörku til varnar neytendum, sem hafa verið freklega blekktir. Það verður einungis gert með rannsókn á því hvort þessi sviksemi einskorðist við eitt fyrirtæki eða hvort það sé víðtækara. Þá þarf að tryggja að nýir bílaleigubílar séu ástandsskoðaðir einu sinni á ári líkt og leigubílar, í stað þess að þeir að þeir séu ástandsskoðaðir fyrst eftir fjögur ár eins og nú er. Jafnframt þarf að tryggja að eftirlit með akstursmælum verði fullnægjandi,“ segir í yfirlýsingunni.

Ýmis rök liggi fyrir aukinni skoðunartíðni. Til að mynda sé bílaleigubílum ekið að jafnaði fjórum sinnum meira árlega en venjulegum bílum og af fjölda misnatinna ökumanna. Þá sé hlutfall bílaleigubíla allt að ellefu sinnum hærra hér en á Norðurlöndunum, sem feli í sér að hlutdeild fyrrverandi bílaleigubíla sé ákaflega há á almennum markaði fólksbíla. „Því er enn meiri nauðsyn að tryggja öryggi þeirra frá upphafi. Stjórn Neytendasamtakanna áréttar að réttur til öryggis er meðal átta lágmarksréttinda neytenda samkvæmt skilgreiningu Sameinuðu þjóðanna, og felur meðal annars í sér vernd gagnvart vörum, framleiðsluháttum og þjónustu sem ógna öryggi neytenda.

Aðgerðir eins aðila hafa rúið heila atvinnugrein trausti, og traust verður einungis byggt upp á ný með aðgerðum sem hafnar eru yfir minnsta grun um hvítþvott eða unda[n]brögð.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert